Andlát: Magnús Theodór Magnússon Á myndinni, sem er nýleg, er Teddi við eitt verka sinna sem er staðsett á hótel Grand.
Höggmyndalistamaðurinn Teddi, sem hét fullu nafni Magnús Theodór Magnússon andaðist í dag 20. júlí 2021. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði 86 ára að aldri.
Teddi fæddist árið 1935 og ól manninn í Reykjavík. Um miðjan aldur sölsaði hann um og gaf sig alfarið að listinni sem reyndist mikið heillaspor. Hann var var kunnur listamaður hérlendis og hélt fjölmargar sýningar á verkum sínum, m.a. í Perlunni frá því seint á síðustu öld og fram til ársins 2012 en hann hélt einnig sýningar í Þýskalandi, Finnlandi og í Færeyjum.