Eini íslenski ríkisborgarinn sem fæddur er í Kambódíu kom í heiminn árið 1978 og lifði síðasta mánuð ógnarstjórnar Pols Pots og Rauðu khmeranna áður en Víetnamar tóku landið og hófu enn meira blóðbað. Danith Chan er fjölskyldukona í Mosfellsbæ sem hitti afa sinn í flóttamannabúðum í Taílandi en fylgdi síðar Ólafi Egilssyni sendiherra á konungsfund í Kambódíu.