Föstudagur, 23. júlí 2021 Sverrir Haukur Halldórsson fæddist á Blönduósi þann 19. mars 1943. Hann lést á hjartadeild Landspítalans þann 17. júlí 2021. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Guðmundsdóttir, f. 1909, d. 2005, og Halldór Albertsson, f. 1886, d. 1961. Systkini hans voru Guðrún, f. 1928, d. 2020, Jón Albert, f. 1930, d. 1930, Kristján Albert, f. 1932, Haukur, f. 1938, d. 1942, Dóra, f. 1947, og Haukur, f. 1949. Þann 27.12. 1969 kvæntist hann Dýrunni Ragnheiði Steindórsdóttur, Díu, frá Brautarlandi í Vestur-Húnavatnssýslu, f. 1945, d. 2019. Hún starfaði sem snyrtifræðingur. Foreldrar hennar voru Sigurbjörg Þórðardóttir, f. 1907, d. 1990, og Steindór Benediktsson, f. 1898, d. 1971.