29.06.2021 - 02:32
Mynd: AP
Hitamet var slegið í Kanada á mánudag, aðeins sólarhring eftir að 84 ára gamalt hitamet í landinu var slegið. Hitinn fór mest í 47,9 gráður um klukkan hálf fimm síðdegis að staðartíma.
Mikil og hættuleg hitabylgja gengur nú yfir vestanverða Norður-Ameríku, alveg frá Oregon í suðri norður til Saskatchewan og Norðvestursvæðisins í Kanada í norðri. Hitinn fer þar óvíða undir 30 stig en þeim mun víðar yfir 40 stigin.
Heitara en heitast hefur orðið í Las Vegas
Fyrra hitamet í Kanada er frá árinu 1937, þegar 45 stiga hiti mældist á tveimur stöðum í Saskatchewan. Það var slegið á sunnudag, þegar 46,6 gráðu hiti mældist í bænum Lytton í Bresku Kólumbíu, um 260 kílómetra norðaustur af Vancouver. Í gær, mánudag, var hitinn svo kominn í 47.5 gráður í þessum sama bæ klukkan fjögur síðdegis og fór upp í 47,9 gráður áður en hann tók að lækka á ný.
Yıldıray Çiçek / TÜRKGÜN - EtikHaber
etikhaber.com - get the latest breaking news, showbiz & celebrity photos, sport news & rumours, viral videos and top stories from etikhaber.com Daily Mail and Mail on Sunday newspapers.
Mustafa İzzet Efendi sergide
yenisafak.com - get the latest breaking news, showbiz & celebrity photos, sport news & rumours, viral videos and top stories from yenisafak.com Daily Mail and Mail on Sunday newspapers.