Hvað gerist þegar gamlar vinkonur hittast og eru saman í sumarbústað heila helgi? Hvað gera miðaldra konur þegar þær fá pásu frá eiginmönnum og börnum og jafnvel barnabörnum? Ef þú hélst að miðaldra konur hlustuðu bara á Bó Halldórs og drykkju te á meðan þær prjónuðu þá ættir þú að skella þér á kvikmyndina Síðasta saumaklúbbinn í leikstjórn Göggu Jónsdóttur. Þar er þessi hópur afhjúpaður, eða allavega svona næstum því!