„Fallegur dagur í vændum“ Bongó. mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson
Í dag léttir til og hlýnar um allt land. „Fallegur dagur í vændum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.
Útlit er fyrir að hæstu hitatölur verði upp undir 25 stig á Suður- og Vesturlandi, en heldur svalara norðaustantil á landinu. Seinni partinn gætu þessar háu hitatölur þó framkallað skúrir suðvestantil.
Á morgun þykknar upp um landið suðvestanvert og kólnar því þar þegar sólin nær ekki í gegn að hita yfirborið. Ekki er þó útlit fyrir mikla vætu með skýjahulunni. Annars staðar mun sólin þó skína og verma landsmenn. Á sunnudaginn verður áfram sólskin fyrir norðan, en skýjahulan syðra mun eitthvað hefta vegi þess.
Iceland
National-weather-service-iceland
Not-included
Sun-shine
Weather-turns
Country-south
ஐஸ்லாந்து
இல்லை-சேர்க்கப்பட்டுள்ளது
சூரியன்-பிரகாசிக்கவும்
வானிலை-திருப்பங்கள்