Framboðslistar VG í Reykjavík samþykktir Frambjóðendur VG í Reykjavík norður. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leiðir lista flokksins í kjördæminu. Ljósmynd/Aðsend
Tengdar fréttir
Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (VG) í Reykjavík vegna komandi alþingiskosninga voru samþykktir á félagsfundi í kvöld og leiða þær Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra listana. Katrín í Reykjavík norður og Svandís í Reykjavík suður.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum. Þar segir að framboðslistar VG í Reykjavíkurkjördæmunum voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum á félagsfundinum.